![Fjölskyldan ehf. artwork](https://is1-ssl.mzstatic.com/image/thumb/Podcasts123/v4/e8/82/0e/e8820efe-cc79-311a-991e-e0a9505062f1/mza_16304027752135461495.jpg/100x100bb.jpg)
Sólarsamba, kvöldrútína og hænuungar
Fjölskyldan ehf.
English - May 09, 2021 08:00 - 36 minutes - 25.2 MBEducation fjölskyldan uppeldi börn foreldrar margrét pála magga pála móey pála hjallastefnan foreldrafræðsla leikskólar Homepage Download Google Podcasts Overcast Castro Pocket Casts RSS feed
Ömmgurnar eru í sólskinsskapi að venju og auðvitað hafa sólríkir dagar áhrif á umræðuefni þáttarins.
Þær byrja á helstu fréttum af yngsta fjölskyldumeðlimnum Adeline Brynju og ræða hvernig kvöldrútínan gengur. Einnig ræða þær tungumál, tvítyngd börn og hvernig áhrif það getur haft á málþroskann.
Þær spjalla síðan um vordaga, sól og áhrif hennar á börn. Hverju þarf að gæta að þegar sólin er hátt á lofti og allir vilja vera úti? Foreldrahlutverkinu fylgir mikil ábyrgð og ekki síst þegar gleði og glaumur taka völdin á löngum sumarkvöldum.
Hænsnabóndinn Lilja flytur tíðindi af hænunum í fjölskyldunni. Katla tekur virkan þátt í því samtali en þær hafa fylgst grannt með Lofthænu sem hefur legið á eggjum síðastliðnar vikur.
Fjölskyldan ehf á facebook
Fjölskyldan ehf á Instagram
Netfang þáttarins: [email protected]
Styrktaraðilar þáttarins eru Krumma leikfanga- og leiktækjaverslun og barnavöruverslunin Regnboginn.
Fjölskyldan ehf á Instagram
Netfang þáttarins: [email protected]