Fjölskyldan ehf. artwork

Fjölskyldan ehf.

67 episodes - English - Latest episode: 9 months ago -

Margrét Pála og Móey Pála spjalla saman um fjölskylduna ehf, heimilislíf, uppeldi og er ekkert mannlegt óviðkomandi í þessu einlæga og skemmtilega hlaðvarpi. Fleiri fjölskyldumeðlimir kveða sér líka hljóðs enda er um Fjölskylduna ehf. að ræða. Margrét Pála setur sig í stellingar sem amma, senn langaamma og fær dótturdóttirin Móey Pála tækifæri til að spyrja ömmu um allt sem verðandi mæður velta fyrir sér 😊 Þær hafa kallað sig ömmgur (amma og dótturdóttir) frá því Móey var lítil stúlka en þær hafa alla tíð átt afar sterkt og sérstakt samband. Hlustendur fá einnig einstakt tækifæri til að kynnast því og fylgja meðgöngu Móeyjar og öllu sem fylgir þessu hamingjuríka og í senn krefjandi hlutverki; foreldrahlutverkinu! Margrét Pála, eða Magga Pála eins og hún er landsmönnum kunn, er frumkvöðull í menntamálum á Íslandi, höfundur Hjallastefnunnar og ötull talsmaður barna. Hún brennur fyrir uppeldi sem og Móey Pála, dótturdóttir hennar, en hún er uppeldis- og menntunarfræðingur.Tónlistarstef þáttarins er eftir Valgeir Guðjónsson og þættirnir eru teknir upp í stúdíó Lubba Peace undir stjórn Inga Þórs Ingibergssonar.

Education fjölskyldan uppeldi börn foreldrar margrét pála magga pála móey pála hjallastefnan foreldrafræðsla leikskólar
Homepage Google Podcasts Overcast Castro Pocket Casts RSS feed

Episodes

,,Í skólanum mínum er síminn bara í körfunni"

October 29, 2023 09:00 - 37 minutes - 25.8 MB

Margrét Pála er komin heim eftir haustfrí á Spáni og dembir sér beint í umræðu um síma, samfélagsmiðla og almenna skjánotkun ásamt Móey Pálu. Mikil umræða um símanotkun barna og ungmenna kviknaði í þjóðfélaginu í kjölfar viðtals við Þorgrím Þráinsson í Bítinu fyrr í mánuðinum. Ömmgurnar taka undir orð um hans um neikvæð áhrif ofnotkunar hjá börnum sem fullorðnum og hversu mikilvægt er að setja mörk á þessu sviði eins og á öðrum sviðum tilverunnar. Þær ræða einnig áhrif skjánotkunar út frá t...

Svarthvíta regnbogafjölskyldan

October 08, 2023 14:00 - 53 minutes - 36.7 MB

Móey Pála og Júlíana Dögg, mágkona hennar, ákváðu með stuttum fyrirvara að taka upp þátt. Tilefnið var því miður ekki gleðilegt en David, maki Móeyar, lenti í leiðindaatviki í sundi á dögunum. Þar fékk hann að finna fyrir fordómum vegna húðlitar síns sem komu honum og fjölskyldunni allri úr jafnvægi.    Júlíana Dögg er fædd og uppalin á Íslandi og á ættir að rekja til Mosambik. Hún og Móey ræða fordóma vegna uppruna, fyrirmyndir og staðalmyndir, óþægilegar athugasemdir og hvað er hægt að ger...

Hávaði, heyrn, heyrnarleysi og tungumál

July 09, 2023 07:00 - 35 minutes - 24.1 MB

Doktor Valdís Jónsdóttir spjallar við Möggu Pálu í þessum þætti og það er hávaði sem þær hefja samtalið á. Þær sjálfar eru ekki með hávaða en Valdís hefur rannsakað hávaða og hvaða áhrif hann hefur á heyrn, börn, kennara og svo framvegis. Hljóðumhverfi barna er þeim báðum hugleikið og þær ræða hvernig hljóðstyrkur dagsins fylgir heim að  leikskóla og skóla loknum. Einnig hvernig fjölskyldum er hætt við að minnka hávaða í fjölskyldurýmum með snjalltækjum og heyrnatólum. Hvaða áhrif getur sú ...

Björkin fæðingarheimili

June 25, 2023 21:00 - 54 minutes - 37.4 MB

Hrafnhildur Halldórsdóttir og Rut Guðmundsdóttir eru ljósmæður í Björkinni fæðingarheimili og viðmælendur Möggu Pálu og Móeyar Pálu að þessu sinni. Hrafnhildur og Arney Þórarinsdóttir stofnuðu Björkina árið 2017 en þær hafa sterka og skýra sýn á ferli fæðinga. Ayon Rúnar drengur Móeyar og Davids fæddist í Björkinni og þær ræða fæðinguna sem bar mjög fljótt að. Að sjálfsögðu færist talið fram og aftur í tíma og um víðan völl en rauði þráðurinn er auðvitað þetta stórkostlega ferli sem fæðingi...

Í fréttum er það helst

June 11, 2023 13:00 - 37 minutes - 25.9 MB

Nú eru tvö ár liðin frá síðustu þáttaseríu og þess vegna margt að frétta hjá Fjölskyldunni ehf., hænum og öllum. Magga Pála er iðin að vanda; uppbygging á heimili og fyrirtæki en henni finnst það nú ekki tiltökumál. Móey Pála er ekki síður iðin með sína ört stækkandi fjölskyldu en verkefnið sem á hug þeirra allan um þessar mundir er tilvonandi húsbygging.  Þær ræða kosti þess að fjölskyldurnar búi nálægt hver annarri og hvernig það styrkir uppeldið og fjölskylduböndin sem verða svo sterk. Þ...

Ný sería fer af stað, fleiri börn, meiri ást, meiri þreyta og flutningar!

May 28, 2023 12:00 - 38 minutes - 26.3 MB

Fjölskyldan ehf. er mætt á ný, reynslunni og einu barni ríkari! Margrét Pála og Móey Pála spjalla saman um ólík og fjölbreytt verkefni fjölskyldunnar eins og t.d. flutninga og fjölskyldureit. Það er ekkert sem er fjölskyldunni óviðkomandi og fara ömmgurnar um víðan völl og ræða erfið málefni sem þarf að ræða. Þungunarrof er eitt af því sem þær kafa ofan í, aðstæður, viðmót, stuttlega rætt um söguna og hvaða merkingu það hefur haft fyrir konur. Einlægt og hjartnæmt spjall að vanda. Katla er ...

Gunnlöð Jóna ræðir skilnað, stefnumót og barneignir

June 20, 2021 11:00 - 39 minutes - 27.1 MB

Síðasti þáttur fyrir sumarfrí hjá Fjölskyldunni ehf og ofuramman er enn fjarri góðu gamni. Móey Pála lætur sína krafta ekki eftir liggja og fær til sín  gullfallega, glæsilega og einhleypa konu í spjall. Það er Gunnlöð Jóna sem ræðir skilnað, kvíða, stefnumót, fjölskylduna og það að langa í börn og vera einhleyp. Hvernig er að vera fráskilin 29 ára og finna pressu frá samfélaginu varðandi barneignir? Er mikilvægt að ákveða að leggja í barneignir upp á einsdæmi á ákveðnum tímapunkti? Einl...

Pálína Axelsdóttir Njarðvík og kjötát, dýraást og alls konar ást

June 13, 2021 08:00 - 37 minutes - 25.9 MB

Amman er fjarri góðu gamni í þessum þætti en hún sinnir Hjallastefnuleikskólanum í Skotlandi. Móey Pála stýrir móðurskipinu á meðan og fær til sín góðan gest í hlaðvarp vikunnar. Það er hún Pálína Axelsdóttir Njarðvík eða fyrrum tengdasystir Móeyjar. Pálína heldur úti vinsælli Instagram síðu - Farmlife Iceland - þar sem hún deilir lífi sauðfjárbónda. Hún er ekki bara samfélagsmiðlastjarna því hún er einnig sérkennslustýra á leikskólanum Litlu-Ásum og elskar að ferðast og eyða tíma með kærus...

Andrea Eyland og útópían um barnvænt samfélag

June 06, 2021 00:00 - 36 minutes - 25.3 MB

Ömmgurnar fá til sín góðan gest í þessum þætti en það er hún Andrea Eyland í Kviknar samfélaginu. Andrea á 5 börn, rekur fyrirtæki og er framkvæmdarstjóri fjölskyldunnar sinnar. Hún ræðir um fjölskyldulífið, þriðju vaktina, sjálfsrækt, barnvænt samfélag og margt fleira. Atvinnuþátttaka kvenna hefur stóraukist og samfélagið mikið breyst á síðastliðnum áratugum. Það sem hefur lítið breyst er fjölskyldan og skyldurnar sem fylgja slíkum rekstri og rekstrarstjórarnir eru oftast konur sem eru nú...

Drengir og menn, karlmennska og ofurhetjur

May 31, 2021 09:00 - 52 minutes - 35.8 MB

Ömmgurnar Móey Pála og Magga Pála taka veðrið í upphafi þáttar og Magga Pála ræðir hvernig lítil börn geta verið eins og barómetar eða loftþrýstingsmælar á veðurfar. Veðrið hefur vissulega áhrif á okkur öll og þá líka á samskipti okkar. Ömmgurnar ræða einmitt samskipti drengja og hvernig fullorðið fólk þjálfar samskipti ólíkt við stúlkur og drengi. Umræðan um drengjauppeldi heldur áfram af fullum krafti og í þetta sinn fær Magga Pála tilvonandi framkvæmdarstjóra Hjallastefnunnar Bóas Hallg...

Drengjauppeldi og allar sálirnar í sveitinni

May 24, 2021 00:00 - 42 minutes - 29 MB

Ömmgurnar komu sér vel fyrir á meðan Adeline Brynja svaf og tóku upp þátt vikunnar. Hlustendur hafa beðið um að ýmis umræðuefni séu tekin fyrir og í þættinum var drengjauppeldi efst á baugi, í takt við umræðu samfélagsins. Margrét Pála hefur rannsakað og unnið með kynjaskipt skólastarf í fjölda mörg ár og hafði sitthvað um málið að segja. Hvernig skal mæta drengjum í skólastarfi og hvers vegna græða drengir á kynjaskiptu skólastarfi? Hvað fara drengirnir okkar á mis við í samfélaginu og hve...

Má bjóða þér lítinn eða stóran æfingabita?

May 16, 2021 17:00 - 29 minutes - 20.1 MB

Kynnir þáttanna, hún Katla, er spennt að fara í sauðburð í Laxárdal og fylgjast með lífinu í sveitinni. Hlustendur fá tóndæmi úr fjárhúsunum. Ömmgurnar Magga Pála og Móey Pála spjalla um mataræði barna og hvernig sektarkennd foreldra getur tengst því. Það er þrennt sem börn gera að ágreiningsefni við foreldra sína um leið og þau geta en það er matur, svefn og fatnaður. Gullna reglan er að muna að börn eru eins ólík og þau eru mörg og það verður að hafa í huga í uppeldi.  Eins að sýna ákvör...

Sólarsamba, kvöldrútína og hænuungar

May 09, 2021 08:00 - 36 minutes - 25.2 MB

Ömmgurnar eru í sólskinsskapi að venju og auðvitað hafa sólríkir dagar áhrif á umræðuefni þáttarins. Þær byrja á helstu fréttum af yngsta fjölskyldumeðlimnum Adeline Brynju og ræða hvernig kvöldrútínan gengur. Einnig ræða þær tungumál, tvítyngd börn og hvernig áhrif það getur haft á málþroskann. Þær spjalla síðan um vordaga, sól og áhrif hennar á börn. Hverju þarf að gæta að þegar sólin er hátt á lofti og allir vilja vera úti?  Foreldrahlutverkinu fylgir mikil ábyrgð og ekki síst þegar gl...

Mannafæla eða frábærlega skynsöm snót

May 02, 2021 11:00 - 36 minutes - 25.1 MB

Hér eru ömmgurnar sestar við hljóðnemann  og Móey Pála deilir reynslu sinni af því að vera að heiman með barnið í 10 daga. Öll rútina fór í vaskinn og unga snótin vissi ekki hvað var að gerast í þessu framandi umhverfi svo að hún hékk föst á mömmu sinni og vildi lítið brosa til frænku og frænda og afa og stjúpömmu og allra vina og vandamanna af öllum gerðum á Þórshöfn. Það var helst að hún samþykkti móðursystur sínar sem eru nánar tiltekið hálfsystur móður hennar, 4, 10 og 11 ára. Að venju...

Lilja, finnst þér leiðinlegt að vera ekki afi?

April 25, 2021 08:00 - 31 minutes - 21.6 MB

Nú er Katla komin í hlutverk þáttastjórnandans þar sem hún tekur á móti Lilju - sem er helmingurinn af "ömmu og Lilju" á Gilsbakkanum.  Móey Pála og Adeline Brynja eru staddar á Þórshöfn að hitta hálfsystur sínar - eða hálfsystur hálfsystur Kötlu. Alls kyns fjölskyldur, hálfar og heilar, stjúptengsl og þarftu að fæða móður barns til að til að vera alvöru amma?  Eftir hlé blandast amma í umræðuna og þá fer allt óvart yfir í umræðu um hænur og fornbíla - hvernig sem það nú tengist? Fjölskyl...

Stolt "brottfall", basl og betrun

April 18, 2021 08:00 - 44 minutes - 30.4 MB

Þáttur vikunnar er tileinkaður Agnari sem er barnabarn númer tvö í Fjölskyldunni ehf. Hann fann sig ekki í framhaldsskóla en vissi ekki hvað hann vildi gera. Áfengi og gras voru freistingar sem hann féll fyrir um tíma en hvað gerði fullorðna fólkið til að styðja unga manninn? Hvað er í boði ef framhaldsskólinn virkar ekki? Hvernig er að eiga eldri systur sem er með allt à hreinu? Er samanburður í fjölskyldunni verri eða betri en samanburðurinn við jafnaldrana? Agnar ræðir einnig hvað han...

Umbun, refsing, hótanir og svipting í alvöru???

April 11, 2021 13:00 - 39 minutes - 27 MB

Að venju fara ömmgurnar yfir stöðuna hjá ungu snótinni sem vex og dafnar, fær sér brauð með kæfu í morgunverð og helst vill ráða rútínu kvöldsins fyrir hönd heimilisins. Hugarstarfsemi hennar er og verður þannig næstu árin að allt er annað hvort eða - ekkert bæði og  Því fylgir að allt verður að reglu, líka það sem er óttaleg óregla fyrir barnið. Látum við undan nauði í barni og endum með jæja þá andvarpinu, hótum við án þess að standa við orð okkar, refsum við barni með athyglissviptingu ...

Koma unglingsárin með kröfum um kynlíf og neyslu?

April 04, 2021 11:00 - 44 minutes - 30.8 MB

Að þessu sinni er það unglingurinn Lilja Björk í Fjölskyldunni ehf. sem spjallar við ömmu og Móeyju Pálu.  Hún lýsir því hvernig er að vera unglingur og spjallar opinskàtt um áskoranirnar sem því fylgja. Hvernig á að velja framhaldsskóla sem hentar? Skiptir félagslífið meira máli en námið, eða öfugt? Hvernig er einkalíf unglingsins inn á stóru heimili? Hvenær þarf að taka til og þrífa? Lilja Björk svarar hreinskilningslega, líka þegar amman spyr um pressuna sem fylgir því að stunda kynlíf, ...

Koma unglingsárin með kröfum um kynlíf og neyslu?

April 04, 2021 11:00 - 44 minutes - 30.8 MB

Að þessu sinni er það unglingurinn Lilja Björk í Fjölskyldunni ehf. sem spjallar við ömmu og Móeyju Pálu.  Hún lýsir því hvernig er að vera unglingur og spjallar opinskàtt um áskoranirnar sem því fylgja. Hvernig á að velja framhaldsskóla sem hentar? Skiptir félagslífið meira máli en námið, eða öfugt? Hvernig er einkalíf unglingsins inn á stóru heimili? Hvenær þarf að taka til og þrífa? Lilja Björk svarar hreinskilningslega, líka þegar amman spyr um pressuna sem fylgir því að stunda kynlíf, ...

Sjö mánaða og stjórnar heimilinu

March 28, 2021 13:00 - 35 minutes - 24.1 MB

Nú eru ungu foreldrarnir komnir í fyrstu uppeldisklípuna enda stækkar unga snótin og þroskast stöðugt. Hún er komin á þann aldur þar sem börn gera mikinn greinarmun á fólki sem þau þekkja og ókunnugum sem þau fara að mótmæla hástöfum. Eins vill hún ekki vera aðskilin frá mömmu sinni og það á bara eftir að versna á næstu mánuðum. Auk alls þessa eru sjö mánaða börn byrjuð að leita leiða til að stjórna umhverfinu; ekki bara þegar þau eru svöng, þreytt, blaut eða einmana. Þarna byrja viljaæfin...

Hlutir kosta peninga

March 21, 2021 09:00 - 30 minutes - 21.1 MB

Ömmgurnar sátu í glænýju heimastúdíói og tóku upp þátt vikunnar í ,,heimakastinu”. Þættirnir eru orðnir 44 og brátt verður komið ár frá því hlaðvarpið Fjölskyldan ehf fór í loftið. Í tilefni þess verða m.a. gjafaleikir á Instagram og Facebook síðum Fjölskyldunnar ehf. Magga Pála og Móey Pála ræddu fátækt barna og ungmenna á Íslandi og muninn á fátækt og blankheitum. Einnig ræða þær hvernig er hægt að jafna aðstöðumun barna og hvetja hvern og einn að finna leið. Öll getum við verið gætin á ...

,,Mig langaði mest að hvæsa á hann”

March 14, 2021 10:00 - 31 minutes - 21.4 MB

Fæðingarorlof, vinnan heima, hlutverkaskipti og samvinna eru m.a. umræðuefni þáttarins að þessu sinni. Adeline Brynja er farin að una sér vel í pössun á meðan ömmgurnar spjalla og þær létu gamminn geysa í góðu og auðvitað mikilvægu spjalli. Móey Pála hefur áhyggjur af því að fara með Adeline Brynju í vistun hjá öðrum, hún er sjálf núna orðin mjög háð dóttur sinni. Alls konar tilfinningar spila þar inn í og í kjölfarið velta þær fyrir sér upplifun feðra á þessu tímabili. Einnig velta þær ...

Samtöl við börn

March 07, 2021 09:00 - 28 minutes - 19.5 MB

Ömmgurnar fóru stuttlega yfir nýjustu fréttir af Adeline Brynju í upphafi þáttar en hún er nýfarin að sitja. Einnig ræddu samtöl við börn og hvernig og hvenær við tölum við börn. Hvers vegna er mikilvægt að tala við börn? Þær ræddu einnig jarðhræringar, áhrif þeirra á börn og mikilvægi þess að segja börnum satt frá en á máli sem hæfir þeirra aldri. Eðlilegt er að börn fylgist með tali fullorðinna og þeirra viðbrögðum við náttúruvá; þá þarf að eiga samtal við börn og tala við þau um hlutina...

Heilsa, veikindi og bólusetningar barna

February 28, 2021 09:00 - 32 minutes - 22.4 MB

Móey Pála og Adeline Brynja komu með ömmu Brynju í hljóðver að þessu sinni. Hún er hjúkrunarfræðingur sem vinnur á barnaspítala Hringsins.  Mæðgurnar spjölluðu um heilsu, veikindi barna og bólusetningar. Þær ræddu hita í börnum, verkjalyf og hverju er gott að fylgjast með þegar börn eru veik og hvenær skal leita til læknis með börn yngri en 3 mánaða. Þær ræddu líka foreldrahópa á samfélagsmiðlum og fyrirspurnir varðandi heilsu barna þar inni. Sýklalyfjagjöf bar einnig á góma ásamt kvíða og ...

Rannsóknaraldur, öskudagur og afreksíþróttir

February 21, 2021 09:00 - 40 minutes - 28.1 MB

Ungbarnasundið var á sínum stað þessa vikuna og Adeline Brynja full af orku þegar þátturinn var tekinn upp. Hún er nú orðin 6 mánaða og komin á svokallaðan rannsóknaraldur; hún skoðar allt og fylgist gaumgæfilega með umhverfinu. Rannsóknir umhverfisins fara að miklu leiti í gegnum munninn á þessu stigi og svo er ótrúlega spennandi að láta hluti detta! Öskudagurinn er auðvitað nýafstaðinn og búningar alls ekki jafn misjafnir og þeir eru margir. En mörg börn kjósa sér búninga eftir þeirra hel...

Ungbarnasund, dulbúin uppeldisfræði

February 14, 2021 09:00 - 26 minutes - 18.5 MB

Adeline Brynja var nýkomin úr Skálatúnslaug þegar ömmgurnar tóku upp hlaðvarp vikunnar. Þær nýttu að sjálfsögðu tækifærið og ræddu ungbarnasund og hverslags töfrastund það getur verið. Þær ræddu þroskaþjálfunina sem fer fram í sundinu, foreldrafærnina, tengslamyndunina, uppeldisfærnina og fleira.   Í ungbarnasundinu myndast mikilvægur vettvangur til að æfa samskipti, að bregðast við barninu sínu, að leika við það og að eiga dýrmætar stundir. Foreldrar æfa sig að vera í einlægni og leik me...

Bræður og systur

February 07, 2021 10:00 - 39 minutes - 26.9 MB

Adeline Brynja kom beint úr fyrsta ungbarnasundtímanum í hlaðvarpsupptöku ásamt móðurbróður sínum og mömmu. Í þessum þætti spjalla systkinin Agnar og Móey Pála um þeirra systkinasamband og hvernig það er að eiga sjö önnur systkini. Þau tala um ferðalög, afbrýðissemi, kröfur, ábyrgð, leikfélaga, rifrildi og hvernig nýta má yngri systkini til ýmissa verka, eins og t.d. að gilla bak eða fá gistifélaga. Yngri systir þeirra Lilja Björk deilir einnig sinni upplifun á að vera í stórum systkinahóp...

Systkini rífast og hvað svo?

January 31, 2021 09:00 - 50 minutes - 34.5 MB

Systkinaerjur má sennilega finna á langflestum heimilum og halda ömmgurnar áfram að kryfja þau mál. Þær spurðu fylgjendur á samfélagsmiðlum hvernig málum væri háttað hjá þeim og fengu frábærar viðtökur.  Niðurstöðurnar komu ekki á óvart; langflest systkini rífast. Þær ræddu þá hvernig er hægt að bregðast við og hjálpa börnum sem lenda í þessum vanda. Þær mæla með nokkrum ráðum sem geta komið í veg fyrir stóra árekstra; halda röð, reglu og rútínu eftir fremsta megni, vanda okkur sem fyrirmy...

Systkinaátök og morðtilræði

January 24, 2021 09:00 - 39 minutes - 27.3 MB

Adeline Brynja lék sér á gólfinu þegar Móey Pála og Magga Pála spjalla í þætti vikunnar. Þær ræddu nýjustu fréttir af Adeline Brynju, sem er orðin 5 mánaða. Hún er vön úrvalsþjónustu enda mikið af fólki sem vill halda á henni og leika við hana. Hún er athugul og forvitin um umhverfið sitt og heldur áfram að æfa sig að borða graut. Í nýjustu skoðun kom í ljós að hún ,,fylgir kúrfu” en Móey passar sig að horfa ekki of stíft í það.  Magga Pála segir svo frá því þegar hún vildi sálga eldri syst...

Áföll sem kenna og hvað skiptir máli

January 17, 2021 09:00 - 32 minutes - 22.6 MB

Móey Pála og Magga Pála halda sér í dýptinni í þessum þætti. Þær ræða það sem raunverulega skiptir máli í lífinu og hvernig harkalegar áminningar móður náttúru og lífsins sjálfs geta hjálpað okkur að setja hlutina í samhengi. Móey Pála deilir átakanlegri reynslu með hlustendum þegar hún blindaðist á öðru auga. Sú reynsla fær hana til að þakka reglulega fyrir það sem hún sér og minnir hana á að ekkert er sjálfsagt.  Ömmgurnar fá hlustendur til að hugsa með sér hvað það er sem við viljum sk...

Hver gerir hvað á heimilinu?

January 10, 2021 09:00 - 34 minutes - 23.7 MB

Adeline Brynja þroskast og dafnar, æfir sig að grípa, spjalla og stýra umhverfinu sínu. Litla fjölskyldan tekst á við breytingar í svefnrútínu, eitthvað sem gæti flokkast undir 4 month sleepregression, sem er ansi algeng og tengist auknum þroska. Það eru eflaust fleiri að kljást við breytta svefnrútínu eftir fríið og finna vonandi að hversdagurinn er kærkominn með sinni rútínu og reglum. Ömmgurnar ræddu einnig verkaskiptingu inn á heimilinu og hvernig er hægt að komast hjá gremju þegar ...

Hver gerir hvað á heimilinu?

January 10, 2021 09:00 - 34 minutes - 23.7 MB

Adeline Brynja þroskast og dafnar, æfir sig að grípa, spjalla og stýra umhverfinu sínu. Litla fjölskyldan tekst á við breytingar í svefnrútínu, eitthvað sem gæti flokkast undir 4 month sleepregression, sem er ansi algeng og tengist auknum þroska. Það eru eflaust fleiri að kljást við breytta svefnrútínu eftir fríið og finna vonandi að hversdagurinn er kærkominn með sinni rútínu og reglum. Ömmgurnar ræddu einnig verkaskiptingu inn á heimilinu og hvernig er hægt að komast hjá gremju þegar ...

Áramótaheit og væntingastjórnun

January 03, 2021 09:00 - 34 minutes - 23.4 MB

Magga Pála, Móey Pála, Adeline Brynja og Katla komu í hljóðver og gerðu upp árið 2020. Þær ræddu það sem skiptir máli og hvað væntingastjórnun er mikilvæg þegar beðið er eftir nýju ári. Þær ræddu covid-19 og áhrif þess á árið sem er að líða og síðast en ekki síst áhrif sem veiran hafði á fjölskyldulífið. Katla óskar margs á nýju ári og er þakklát fyrir margt, eins og t.d. fæðingu litlu frænku, hennar Adeline Brynju.  Margrét Pála setti sér áramótaheit og deilir því með hlustendum. Að lokum...

Áramótaheit og væntingastjórnun

January 03, 2021 09:00 - 34 minutes - 23.4 MB

Magga Pála, Móey Pála, Adeline Brynja og Katla komu í hljóðver og gerðu upp árið 2020. Þær ræddu það sem skiptir máli og hvað væntingastjórnun er mikilvæg þegar beðið er eftir nýju ári. Þær ræddu covid-19 og áhrif þess á árið sem er að líða og síðast en ekki síst áhrif sem veiran hafði á fjölskyldulífið. Katla óskar margs á nýju ári og er þakklát fyrir margt, eins og t.d. fæðingu litlu frænku, hennar Adeline Brynju.  Margrét Pála setti sér áramótaheit og deilir því með hlustendum. Að lokum...

Trúir þú á jólasveina?

December 20, 2020 09:00 - 32 minutes - 22.3 MB

Adeline Brynja tengist ömmu sinni Adeline sem er komin til landsins frá Bahamas og gleðst yfir fleiri leikfélögum. Hún tekur þroskastökk og er farin að bragða graut rétt tæplega 4 mánaða og er líka á leiðinni í sund í fyrsta skipti, það gerist margt í lífi lítillar stúlku.  Ömmgurnar ræddu um jólasveinana, þeirra tilvist og trú barna. Börn á ákveðnum aldrei eiga það til að efast um tilvist sveinanna en Magga Pála bendir réttilega á að við höfum fæst séð útvarpsbylgjur, internet eða Guð. Við...

Jólasveinar og hver er eiginlega Grýla?

December 13, 2020 09:00 - 38 minutes - 26.2 MB

Hlustendur fá að heyra nýjustu fréttir af litlu fjölskyldunni sem undirbýr komu föðurömmunnar frá Bahamas.  Ömmgurnar ræddu einnig komu jólasveinanna og skynsemi þeirra. Upp úr dúrnum kom saga frá Móeyju sem fékk eitt sinn hráa kartöflu í skóinn en annars var hún alltaf afar þakklát fyrir snjallar gjafir eins og mandarínur, sokkabuxur eða annað nothæft.  Hlustendur fá líka að heyra Grýlusögu frá Möggu Pálu sem hefur tekið að sér hlutverk hennar. Það var líka rætt hversu mikilvægt það er fy...

Fokkjú eða kæri vinur

December 06, 2020 09:00 - 28 minutes - 19.8 MB

Desember er genginn í garð með öllum sínum áskorunum. Þá er nú mikilvægt sem aldrei fyrr að vanda orðin sín, ríghalda í jákvæðnina og vera lausnamiðuð fyrir velferð allra. Tími sem er ekki gleðilegur fyrir alla þarf mögulega að endurhugsa og endurskipuleggja. Ömmgurnar ræða einnig hvenær á að eignast börn? Þarf að vera búið að festa kaup á húsnæði, klára menntun eða hvað þarf að gera?  Katla er komin í jólastuð og deilir litlu leyndarmáli með hlustendum. Stjörnugjöf og skrifuð umsögn um þæt...

Nánd og kynlíf eftir meðgöngu

November 29, 2020 09:00 - 40 minutes - 28 MB

Hvenær ,,má” stunda kynlíf eftir fæðingu? Er eðlilegt að bíða lengi? Hvernig vita pör að þau eru tilbúin að stunda kynlíf eftir oft átakanlega líkamlega og andlega reynslu? Í þættinum kom Sigga Dögg kynfræðingur og ræddi um kynlíf og nánd eftir meðgöngu við ömmgurnar. Í þessu spjalli er einlægnin og heiðarleikinn í algeru fyrirrúmi og unga móðirin hlífir sér ekkert um þetta mikilvæga málefni.  Fjölskyldan ehf á facebook Fjölskyldan ehf á Instagram Netfang þáttarins: [email protected]...

Nútímafjölskyldur og lesbían sem missti forræðið

November 22, 2020 08:00 - 43 minutes - 29.7 MB

Brjóstagjöfin gengur vel hjá Móeyju Pálu en það var ekki raunin hjá Möggu Pálu sem gat einungis haft Brynju dóttur sína á brjósti í 3 vikur. Það reyndist ungu móðurinni mun erfiðara en hún vildi viðurkenna en hafði sáralítil áhrif á dótturina. Það reyndist þessari ungu móður líka erfitt að horfast í augu við það að hún varð ástfangin af konu en það erfiðasta af öllu var að missa forræði dóttur sinnar vegna samkynhneigðarinnar. Hversu sterk eru tengsl foreldra við börnin sín og hvernig lifa f...

Jólahald í fæðingarorlofi og á lágmarkslaunum

November 14, 2020 23:00 - 37 minutes - 25.6 MB

Eftir þungt ár eru eflaust margar fjölskyldur uggandi yfir jólahátíðinni. Litla fjölskyldan fer ekki varhuga af þeim áhyggjum enda eru skertar tekjur í fæðingarorlofi og lágmarkslaun í ummönnun ekki upp á marga fiska. Magga Pála lumar að sjálfsögðu á góðum ráðum til að draga úr streitu í fjölskyldum fyrir jólin og hvernig hægt er að færa fókusinn yfir á það sem öllu máli skiptir. Föðuramma og föðurlangamma eru væntanlegar til landsins frá Bahamaeyjum og litla fjölskyldan undirbýr notalegar s...

Framkvæmdastjóri stórfyrirtækis deilir gleði og sorgum

November 07, 2020 23:00 - 35 minutes - 24.7 MB

Magga Pála, Brynja, Móey Pála, Adeline Brynja og hundurinn Árni komu saman í hljóðver, en Árna var ekki treyst á músaveiðar. Í þættinum er spjallað um einelti, uppteknar fjölskyldur og öll verkefni framkvæmdarstjórans í Fjölskyldunni ehf. Adeline Brynja æfir röddina sína af kappi og spjallar í gríð og erg. Brynja gerir sig klára til að fara á Covid vakt og ræða þær hversdaginn á breyttum tímum. Katla sér auðvitað um kynningu og kveðju. Fjölskyldan ehf á facebook Fjölskyldan ehf á Instagram...

Einelti og ungfrú Lágafellsskóli

November 01, 2020 12:00 - 50 minutes - 34.4 MB

Litla fjölskyldan dafnar og fregnir af skelfingu eineltis angra móðurina með litla krílið í fanginu því að hver vill ekki vernda barnið sitt fyrir hættum heimsins. Magga Pála tekur léttar einræður um leiðir til að fyrirbyggja mögulelikana á einelti ef raunverulegur vilji er fyrir hendi og ungfrú Lágafellsskóli deilir neikvæðum afleiðingum slíkrar kosningar. Katla kynnir þáttinn inn að vanda og fær vinkonu með sér í lið í afkynningu. Fjölskyldan ehf á facebook Fjölskyldan ehf á Instagram N...

Föðurhöfnun, fjölskyldugalskapur og fall á smíðaprófi (næstum).

October 25, 2020 06:00 - 44 minutes - 30.5 MB

Adeline Brynja er enn að vinna í því að taka pabba sinn í sátt og fjölskyldan litla leggst á eitt til að styrkja tengslin. Ömmgurnar standa sig vel í síma-afvötnuninni og finna breytingar með minni símanotkun. Amman setti nýtt met í einkunnum en hún hefur ekki fengið svona lágt í prófi áður, hvernig tekst kona á við það? Spurningarnar halda áfram að berast og í þættinum fór áherslan á systkinaerjur, ofurhetjur, vetrarfrí og þreytupirring á stórum heimilum.  Fjölskyldan ehf á facebook Fjöl...

Ömmgur í afvötnun

October 18, 2020 06:00 - 45 minutes - 31.5 MB

Móey Pála og Magga Pála komu í hljóðver ásamt Adeline Brynju og tóku stöðuna á ömmunni eftir heilandi frí. Einnig ræddu þær hvernig Móey Pála stígur inn í móðurhlutverkið og hversu krefjandi það getur verið að gera einfalda hluti eins og að sturta sig með grátandi ungabarn.  Þá ræddu þær símanotkun og hvernig foreldrar þurfa að stíga inn í ný verkefni í uppeldinu og hvernig við fullorðna fólkið högum okkur sjálf. Þær ákváðu í þættinum að fara síma-afvötnun og temja sér betri siði t.d. á kvö...

"Móðursjúkt" ungbarn og samband foreldra eftir fæðingu

October 11, 2020 14:00 - 37 minutes - 25.9 MB

Í þessum þætti er Móey Pála ein í stúdíóinu því að amman skellti sér í andlegar heilsubúðir út á land. Hér svarar hún mörgum persónulegun spurningum frá hlustendum um nýja hlutverkið eins og um móðurástina og brjóstagjöf þar sem pabbinn er utan gátta og samband þeirra foreldranna á nýjum forsendum. Jafnréttið á heimilinu kemur til tals ásamt sektarkennd móður ef barnið fær í magann því hvað borðaði hún eiginlega sem fer svona illa í barnið? Styrktaraðilar þáttarins eru Krumma leikfanga- og ...

Lofið þreyttum að sofa

October 04, 2020 06:00 - 35 minutes - 24.5 MB

Þær komu fjórar í hljóðver: Magga Pála, Móey Pála, Katla og hin nýskírða Adeline Brynja. Þær röbbuðu saman um skírnina og nafn litlu stúlkunnar. Stóra málið í þættinum var samt svefn og rútína. Hvernig gengur að búa til rútínu heima með lítið barn? Hvenær þurfa skólabörn að fara að sofa? Hvers vegna þurfum við að sofa svona mikið og hefur svefninn einhver áhrif á líkamsstarfsemi okkar? Þær ræða líka hvers vegna það er mikilvægt að samræma aðferðir við að svæfa á milli umsjáraðila og þennan g...

Lofið þreyttum að sofa

October 04, 2020 06:00 - 35 minutes - 24.5 MB

Þær komu fjórar í hljóðver: Magga Pála, Móey Pála, Katla og hin nýskírða Adeline Brynja. Þær röbbuðu saman um skírnina og nafn litlu stúlkunnar. Stóra málið í þættinum var samt svefn og rútína. Hvernig gengur að búa til rútínu heima með lítið barn? Hvenær þurfa skólabörn að fara að sofa? Hvers vegna þurfum við að sofa svona mikið og hefur svefninn einhver áhrif á líkamsstarfsemi okkar? Þær ræða líka hvers vegna það er mikilvægt að samræma aðferðir við að svæfa á milli umsjáraðila og þennan g...

Róhildur Slök

September 26, 2020 23:00 - 35 minutes - 24.4 MB

Mál málanna er nafn litlu stúlkunnar, hvað á barnið að heita? Hvernig á að velja rétt nafn? og skiptir nafnið máli upp á persónuleika barnsins? Í lok þáttarins fær Katla að deila nafninu með ykkur. En ömmgurnar ræða margt fleira og ekki síður mikilvægt. Nú er Móey Pála ein heima á daginn með litlu stúlkuna og David er farinn að vinna. Hvernig skiptast þá heimilisverkin? Og hvernig er að aðlagast nýjum takti? Fjölskyldan ehf á Instagram Fjölskyldan ehf á facebook Styrktaraðilar þáttarins e...

Erum við ekki öll frá sömu plánetunni?

September 20, 2020 06:00 - 45 minutes - 31.4 MB

Fjórar kynslóðir sátu saman í hljóðveri og ræddu hvernig síprjónandi nýbökuð amma upplifir sitt hlutverk. Þær ræddu einnig eitthvað sem er alveg nýtt í fjölskyldunni: spennuna yfir því hvernig litla stúlkan verður á litinn. Þarf að tala um ólíkt litaraft? Og hvernig er rétt að nálgast það? Mikilvægt og hjartnæmt spjall sem endranær.  Hlustið kæru vinir og munið að gefa þættinum stjörnur og deila honum áfram.  Styrktaraðilar þáttarins eru Krumma leikfanga- og leiktækjaverslun og barnavöruver...

Kemur pósturinn nokkuð með börnin?

September 13, 2020 06:00 - 30 minutes - 20.9 MB

Magga Pála, Móey Pála og sú litla spjalla saman í hljóðveri. Þær ræða tilfinningatengsl, vinnuna að vera í fæðingarorlofi og hvernig lífið aðlagast nýjum einstaklingi. Magga Pála segir tilfinningaþrungna sögu af rofnum tilfinningatengslum, hversu erfið lífsbaráttan gat verið árum áður og hversu mikið hefur breyst til hins betra. Hafið vasaklút við hendina kæru hlustendur.  Styrktaraðilar þáttarins eru Krumma leikfanga- og leiktækjaverslun og barnavöruverslunin Regnboginn. Fjölskyldan ehf á...