Hvað er málið? artwork

Hvað er málið?

34 episodes - English - Latest episode: over 1 year ago -

Dularfull, spennandi og áhugaverð mál verða tekin fyrir í þessum þætti. Hvort sem það eru staðir, atburðir, fólk eða eitthvað annað.

History True Crime disappearance history mystery truecrime
Homepage Google Podcasts Overcast Castro Pocket Casts RSS feed

Episodes

Lake Nyos hörmungin.

November 02, 2022 15:59 - 46 minutes - 63.5 MB

Í Kamerún í Vestur Afríku er vatnið Nyos.  Vatnið hefur verið nefnt dauðavatnið vegna þess að það var tifandi tímasprengja sem sprakk árið 1986 og létust tæplega 1800 manns af völdum köfnunar.  Þátturinn er í boði: Til að gerast áskrifandi af Hvað er málið? vikulegu þáttunum getið þið farið inn á

911 símtal - Húsið brennur (Áskrift)

August 26, 2022 16:31 - 3 minutes - 5.38 MB

Brot úr nýjasta áskriftarþætti Hvað er málið?  Til þess að gerast áskrifandi:    EKKI FYRIR VIÐKVÆMA!  Loretta Pickard hringir í 911 þegar hún finnur að húsið hennar er að fyllast af reyk.   Loretta er ófær um að ganga nema við göngugrind sem gerir henni það erfitt að forða sér úr brennandi húsinu sínu. 

Flug AF447 - Vélin sem féll í Atlantshafið

May 17, 2022 22:41 - 49 minutes - 68.5 MB

Þann 1 júní 2009 hvarf Airbus breiðþota frá Air France yfir Atlantshafi með 228 mann innanborðs. Eftir að svörtu kassarnir fundust kom óhugnalegur sannleikur um örlög vélarinnar raunverulega í ljós. 

Morð fyrir mömmubloggið? Lacey Spears - SEINNI HLUTI

September 15, 2021 15:30 - 51 minutes - 72.4 MB

Í þessum þætti fer ég yfir málin eftir að Lacey eignast son sinn Garnett og hvað veldur því að hann svo deyr einungis 5 ára gamall árið 2014     

Morð fyrir mömmubloggið? Lacey Spears. FYRRI HLUTI

September 08, 2021 20:09 - 51 minutes - 72.4 MB

Lacey Elisabeth Spears afplánar nú dóm eftir að hafa verið sakfelld árið 2015 fyrir að eitra fyrir syni sínum í þau 5 ár sem hann lifði.  Hræðilegt mál í alla staði en Garnett litli má ekki gleymast.  Lacey neitar enn sök   Instagram: Hvad er malid  Styrktaraðili: Hansoggreta.is

Eldgos á White Island

May 23, 2021 10:27 - 51 minutes - 70.3 MB

Í desember árið 2019 gaus virkasta eldfjall Nýja Sjáland. Það hefur vissulega gerst áður en í þetta skipti voru 47 grunlausir ferðamenn í ævintýraferð á eyjunni að dáðst af stórbrotinni náttúru.  22 létust og 25 særðust, 7 alvarlega.  SKelfilegur atburður en hefði ekki auðveldlega verið hægt að koma í veg fyrir þetta ? Td. ef ferðaþjónustuaðilar hefðu hlustað á jarðvísindamenn sem töldu eyjuna ekki vera stað fyrir daglegar skemmtiferðir. 

Fangelsið í Alcatraz

November 10, 2020 22:37 - 1 hour - 96.8 MB

Alcatraz, flóttinn frá Alcatraz, orrustan við Alcatraz, Al Capone og allir þessir. Ég stikla á stóru um þetta allt saman í þessum fyrsta þætti 2.seríu.   Ég minni á instagramsíðu þáttarins: Hvað er málið Mitt instagram: Sigrún Sigurpáls Og ég hvet ykkur til að kíkja á styrktaraðila þáttarins en það er verslun á Akranesi, Hans og Gréta sem selur barnafatnað, fullorðinsfatnað og leikföng. Þau eru að opna nýja vefverslun og hana getið þið skoðað inn á www.hansoggreta.is - Það verða frábær tilboð...

The Butterbox babies

October 02, 2020 21:39 - 40 minutes - 57.7 MB

THE IDEAL MATERNITY HOME -  Var barnabúgarður í búningi hins fullkomna fæðingarheimilis. Hjónin Lila og William Young voru skrímsli sem fengu að starfa óáreitt í alltof mörg ár. 

Hvarf Karlie Gusé

September 21, 2020 13:07 - 36 minutes - 52.4 MB

Karlie var 16 ára þegar hún hvarf árið 2018 eftir að hafa reykt marijuana í partý með vinum sínum og upplifað ofsahræðslu, ofskynjanir og vanlíðan.  Hún er talin hafa farið heiman frá sér að morgni 13 okt, 2018 enn í vímu en ekkert hefur spurst til hennar síðan. 

THE SILENT TWINS

September 11, 2020 19:42 - 59 minutes - 83.3 MB

Tvíburasysturnar June og Jennifer Gibbons áttu erfið uppvaxtarár í Englandi vegna harkalegs rasisma sem hafði þau áhrif á þær að þær töluðu ekki við neinn, eingöngu hvora aðra.  Önnur þeirra þurfti að deyja svo hin gæti lifað eðlilegu lífi. 

88 daga einangrun - Jayme Closs

August 24, 2020 20:27 - 39 minutes - 56.1 MB

Í október 2018 var ruðst inn á heimili Closs fjölskyldunnar í Wisconsin. Jayme Closs, 13 ára varð vitni af því þegar foreldrar hennar voru skotnir til bana áður en henni var svo hent í skott á ókunnugum bíl og flutt í burtu. 

Sabrina Zunich

August 07, 2020 14:01 - 47 minutes - 67.3 MB

Árið 2012 myrti Sabrina Zunich fósturmóður sína Lisu Knoefel.  Málið vakti mikinn óhug og 911 símtalið í þættinum er EKKI fyrir viðkvæma.  Ástæða morðsins var verri en maður hefði getað ímyndað sér. 

George Stinney Jr.

June 25, 2020 13:10 - 43 minutes - 61.3 MB

Stinney Jr var aflífaður árið 1944 í suðurríkjum Bandaríkjanna aðeins 14 ára gamall, og það fyrir glæp sem hann framdi ekki.   Saga fjölskyldunnar er átakanleg.  #blacklivesmatter #saytheirname

CULTS - The Ant Hill Kids - Seinni hluti

June 12, 2020 13:24 - 44 minutes - 62.7 MB

Seinni hluti frásagnarinnar um sértrúarsöfnuðinn The Ant Hill Kids sem stýrt var af harðri hendi leiðtogans Roch Thériault.   

CULTS - The Ant Hill Kids - Fyrri hluti

June 05, 2020 15:34 - 38 minutes - 54.6 MB

Í þættinum fjalla ég um sértrúarsöfnuðinn sem undir leiðsögn Roch "Mosé" Thériault einagraði sig í óbyggðum, langt frá allri siðmenningu. Þessi fyrri hluti fjallar um Roch fram að þeim tíma þegar hann fluttist svo með cultinn sinn í óbyggðirnar og hvernig hann mótaðist í að verða algjört skrímsli. 

Marybeth Tinning og börnin hennar

May 21, 2020 13:49 - 1 hour - 99.4 MB

Marybeth Tinning missti níu börn á 14 árum. Öll undir 5 ára.  Var hún miskunarlaus morðingi, móðir sem var illa haldin af Munchausen syndrom by proxy eða gat slík ólukka virkilega lagst á eina fjölskyldu ? 

Einn afkastamesti svikari í sögu vísindanna

May 15, 2020 11:43 - 37 minutes - 53.4 MB

Japanski bæklunarsérfræðingurinn Yoshihiro Sato falsaði fjöldann allann af rannsóknum í tenglum við bein og beinbrot, sérstaklega hjá sjúklingum með Alzheimer og Parkisons. 

Tylenol eitrunin

May 05, 2020 16:09 - 46 minutes - 65.7 MB

Árið 1982 kom upp morðmál í Chicago þar sem búið var að koma fyrir eitri í lyfinu Tylenol.  Ein risastór óleyst ráðgáta. 

Draugaskipið Alkimos

April 27, 2020 21:44 - 35 minutes - 51.1 MB

Örþáttur - Draugaskip eru alltaf heillandi umfjöllunarefni!  Ógæfan elti Alkimos og gerir enn.      Instagram - Sigrunsigurpals Snapchat - Sigrunsigurpals

Málið er: Terry Jo - Munaðarlaus á hafi

April 18, 2020 00:02 - 36 minutes - 52 MB

1961 sökk snekkjan Bluebelle. Í fyrstu var þetta talið hræðilegt slys en annað koma á daginn og það sem raunverulega gerðist er virkilega hrollvekjandi. 

Málið er: Anders Behring Breivik

April 06, 2020 23:48

Anders Breivik myrtle 77 manns í Noregi 2011. Þar af tugi ungmenna í Útey.    Ég minni á:  Facebook síðu þáttarins facebook.com/hvadermalid og instagram síðuna hvað er málið.  Mitt insta og snap: Sigrunsigurpals

Málið er: Anders Behring Breivik

April 06, 2020 23:48

Anders Breivik myrtle 77 manns í Noregi 2011. Þar af tugi ungmenna í Útey.    Ég minni á:  Facebook síðu þáttarins facebook.com/hvadermalid og instagram síðuna hvað er málið.  Mitt insta og snap: Sigrunsigurpals

Málið er: Dularfulla hvarfið á Brian Shaffer

March 21, 2020 14:46 - 46 minutes - 65.7 MB

Maður gekk inn á bar... og sást aldrei meir Brian Shaffer hvarf inn á staðnum Ugly Tuna Saloona í Columbus Ohio. Eitt dularfyllsta mannshvarf sögunnar. 

Málið er: Morðið á Gabriel Fernandez

March 04, 2020 21:54 - 54 minutes - 76.7 MB

Ekki fyrir viðkvæma.  Gabriel var 8 ára þegar móðir hans fékk forræði yfir hounm.  Á 8 mánuðum varð hann fyrir svo hræðilegu ofbeldi að það á endanum leiddi hann til dauða.   Móðir hans situr nú í lífstíðarfangelsi og sambýlismaður hennar hlaut dauðadóm fyrir sína aðild í málinu.   

Árásirnar 9/11

February 23, 2020 12:20 - 1 hour - 118 MB

Við vitum öll hvað gerðist þann 11 sept. 2001 En hverjir eru Al-Qaeda,  Af hverju réðust þeir á Bandaríkin og er eitthvað til í þessum samsæriskenningum ? 

Málið er: Bermuda Triangle

February 08, 2020 00:16 - 1 hour - 99.9 MB

Er Bermuda þríhyrningurinn óleyst ráðgáta ?  Ég fer yfir fullt af slysum sem hafa átt sér stað innan hans ásam samsæriskenningum og vísindalegum kenningum.    Njótið!

Örþáttur - 10 skrítnir staðir

January 30, 2020 19:49 - 46 minutes - 65.2 MB

Við kynnum okkur stuttlega 10 staði í heiminum sem ekki er leyfilegt að heimsækja.  Td. The North sentinel Island þar sem illskeyttir eyjaskeggjar bíða eftir þér á ströndinni með spjótin sín og ætla sér að sjá til þess að þú munir ekki stíga fæti á þeirra yfirráðasvæði.  Við endum þáttinn svo á smá bloopers. Hver elskar það ekki! 

Örþáttur - 10 skrítnir staðir

January 30, 2020 19:49

Við kynnum okkur stuttlega 10 staði í heiminum sem ekki er leyfilegt að heimsækja.  Td. The North sentinel Island þar sem illskeyttir eyjaskeggjar bíða eftir þér á ströndinni með spjótin sín og ætla sér að sjá til þess að þú munir ekki stíga fæti á þeirra yfirráðasvæði.  Við endum þáttinn svo á smá bloopers. Hver elskar það ekki! 

Málið er: Flugslysið í Andesfjöllunum

January 24, 2020 11:43 - 49 minutes - 69.5 MB

Árið 1972 fórst flugvél í Andesfjöllunum með 45 manns innanborðs.  12 létust í lysine en hinir 33 þurftu að berjast af öllu afli til að lifa. Sumum tókst það öðrum ekki en dvöl þeirra í óbyggðunum stóð yfir í rúmlega tvo mánuði og eina fæðan sem þeir höfðu var mannakjöt af látnum vinum og ættingjum. 

Málið er: Soham-morðin

January 17, 2020 22:05 - 1 hour - 94.8 MB

Þann 4 ágúst 2002 hurfu þær Holly og Jessica á göngu í rólega bænum sínum. Engann hefði grunað hvað átti eftir að koma í ljós.

Málið er: Madeleine McCann

January 09, 2020 22:03 - 1 hour - 83 MB

Þann 3 maí 2007 var Maddie í fríi með foreldrum sínum í Praia De Luz í Portúgal. kl 22 uppgötvar mamma hennar að hún er horfin og upp hefst mikil leit. Nú að verða 13 árum síðar hefur hún ennþá ekki fundist og enginn veit hver örlög hennar urðu.  Í þessum þætti fer ég yfir atburðarásina, kenningar og fleira. 

Winchester Setrið

December 29, 2019 17:52 - 39 minutes - 55.6 MB

Winchester húsið er sagt vera eitt það reimdasta í heimi.  Sara Winchester er konan á bakvið bygginguna og í þessum þætti fer ég aðeins yfir sögu hennar og hússins.

Málið er: Aokigahara skógurinn

December 17, 2019 17:23 - 31 minutes - 27.4 MB

Við rætur hins mikilfenglega Mount Fuji, hæsta fjalls Japans liggur skógurinn Aokigahara. Hann er þó betur þekktur sem "Sjálfsvígsskógurinn" og er víst mikill reimleiki í skóginum. 

Málið er: Hvarf MH370

December 09, 2019 20:33 - 42 minutes - 33.9 MB

Fyrir rúmum 5 árum hvarf Boeing 777 þota frá Malaysia Airlines.  En hefur flakið ekki fundist og enginn af þeim 239 sem voru innanborðs.