Dagbók Urriða artwork

Dagbók Urriða

22 episodes - English - Latest episode: 6 months ago - ★★★★★ - 1 rating

Veiðispjall, fróðleikur, tímaferðalög, veiðisögur og annað til að drepa tímann.

Nature Science
Homepage Apple Podcasts Google Podcasts Overcast Castro Pocket Casts RSS feed

Episodes

Dauði bleikjunnar. (Gamall Patreon þáttur)

November 09, 2023 11:23 - 1 hour - 66 MB

Í þessum þætti skoðum við hnignun bleikjunnar. Hvað er að gerast? Það veit enginn fyrir víst, en nokkrar líklegar kenningar eru á sveimi. Við gerum það eina sem við getum og rýnum í tölur, veður og sjó og finnum óvænta samnefnara. Þessi þáttur er nokkuð þungur nördalega.

Þurrfluguveiði með Óla Caddisbróður. (Gamall Patreon þáttur)

November 09, 2023 11:18 - 59 minutes - 54.3 MB

Í þessum þætti fáum við Ólaf Ágúst Haraldsson (Óli Caddisbróðir) í spjall og tölum um listina að veiða á þurrflugu.

Dagur Árni - Allt um straumflugur fyrir stóru fiskana. (Gamall patreon þáttur)

November 09, 2023 11:15 - 1 hour - 65.6 MB

Í þessum þætti heyrum við í Dag Árna og lærum mikið um stórar straumflugur og þá tækni sem býr að baki því að ná þessum stóru fiskætum. Við spjöllum líka um Kaliforníu og þær hættur sem leynast þar í veiðinni. Virkilega skemmtilegur þáttur sem mikið er hægt að læra af.

Maðurinn með hornsílin. (Gamall Patreon þáttur)

November 09, 2023 11:09 - 1 hour - 68.4 MB

Í þessum þætti spjöllum við Tryggvi Guðmundsson um ýmislegt í veiðinni. Tryggvi hefur starfað við jöklaleiðsögn til fjölda ára en er einnig sjúkur veiðimaður og náttúrubarn. Tryggvi nemur nú líffræði við Háskóla Íslands. Við skoðum Arnarvatnsheiði, pöddur, fluguhnýtingar, sýkingar í fiskum og hornsíli ásamt mörgu fleira skemmtilegu.

Caddisbræður

December 15, 2022 19:05 - 1 hour - 88.9 MB

Í þessum þætti komu þeir Caddisbræðir, Óli og Hrafn í spjall. Þeir bræður eru með færustu þurrfluguveiðimönnum landsins og einstaklega mikil náttúrubörn. Þeir eru líka afskaplega skemmtilegir menn og fróðir. Mjög skemmtilegt spjall, þar sem mikið er hlegið.

Frændaspjall - Elías Pétur Þórarinsson Viðfjörð.

December 07, 2022 21:55 - 41 minutes - 38 MB

Hann Elías Pétur kom í langt og skemmtilegt spjall. Við fórum um víðan völl. Urriða,bleikju og laxveiði, Fuss félag, sjókvíaeldi og yfir í að spjalla um móahægðir veiðimanna. Skemmtilegur þáttur. 

Einveran og austurland.

December 02, 2022 00:02 - 40 minutes - 37.4 MB

Í þessum þætti tölum við aðeins um þá iðju að veiða einn. Einnig læt ég loksins verða af því að kynna mér silungsveiðina á austurlandi með hjálp góðs gest. Jón Þór Tryggvason er gestur minn í þessum þætti.

Galdraflugan og brennuöldin á Íslandi.

November 22, 2022 23:48 - 38 minutes - 35.6 MB

Í þessum þætti leitum við svara hversvegna Bibio Pomonae er kölluð Galdrafluga. Sú leit tekur okkur til baka um tæp 400 ár þar sem ár og vötn eru yfirfull af fisk og Íslendingar voru brenndir á báli. Þessi er nokkuð sagnfræðiþungur. Fulla útgáfu má finna á patreonsíðu Dagbókar urriða.

Jónas og arfurinn.

November 16, 2022 22:55 - 51 minutes - 47.1 MB

Í þessum þætti leiðbeinum við honum Jónasi um silungsveiðina á Íslandi. Jónas er byrjandi sem verður að veiða 5 punda silung og eða 5 vænar bleikjur á innan við sólarhring til þess að erfa moldríkan föður sinn. Vandamálið er að Jónas á aðeins tvær flugur og engan pening. En við hjálpum honum í gegnum þetta.

Dagbók Urriða - Hin rotnandi hætta.

November 08, 2022 21:40 - 53 minutes - 49.1 MB

Í þessum þætti skoðum við Hnúðlaxinn. Hvað er þessi afturgöngufiskur að vilja okkur. Hvaðan kemur hann og hversvegna. Við förum vandlega í málið.

Truflaðir veiðimenn - Hólmsá (frír Patreonþáttur)

January 07, 2022 00:15 - 1 hour - 56.1 MB

Við skoðum Hólmsá, Bugðu og það frábæra vatnakerfi sem er fyrir ofan Elliðavatn í þessum þætti. Grúskum í sagnfræði og heyrum í Sævari Snorrasyni veiðiverði og veiðimanni.

Grímsá og nágrenni - Dagbók urriða.

December 23, 2021 23:05 - 40 minutes - 37 MB

Við skoðum ýmislegt í þessum þætti. Bjarni Sæmundsson skoðar Reyðarvatn, Hreðavatn og Langavatn. Við laumust til þess að skoða Grímsá, Vatnsdalsá og margt fleira skemmtilegt. Til ykkar sem viljið styrkja þessi hlaðvörp. www.Patreon/dagbokurrida

Truflaðir veiðimenn - Ep2 - 1992 - Patreon þáttur - frír

December 21, 2021 19:14 - 1 hour - 65.7 MB

Við ferðumst aftur til 1992 og skoðum veiðina þá. Eftir þá samatekt heyrum við í einstaklega færum veiðimanni og spyrjum hann spurninga þáttarins. Þessir þættir fara inn á lokaðan Patreonreikning eftir þennan þátt. Hjálpið mér að standa í þessu með því að styrkja mig um "hamborgara" á mánuði á https://www.patreon.com/Dagbokurrida

SKORRADALUR - SKRÍMSLI - SLEPPINGAR -SLYS

December 16, 2021 10:51 - 46 minutes - 42.6 MB

Við skoðum Skorradalsvatn árið 1898. Einnig leyfum við okkur að ferðast fram og til baka og snerta aðeins á sögunni á svæðinu. Við skoðum veiðina og þær breytingar sem átt hafa sér stað þar undanfarna áratugi.

Truflaðir veiðimenn - Ep1 -1981 Patreon þáttur (frír)

December 15, 2021 15:17 - 56 minutes - 51.6 MB

Truflaðir veiðimenn eru hlaðvarpsþættir um veiði og sagnfræði sem í framtíðinni verða aðeins aðgengilegir í gegnum Patreon-síðu Dagbókar urriða. Í þáttunum stillum við tímavél og ferðumst aftur í tímann og skoðum einstaka ár í veiðinni á Íslandi, ásamt því að hringja í allskonar veiðimenn, trufla þá og reyna að ná í spjall. Skemmtilegir þættir fyrir áhugasama um stangveiði og sagnfræði.

Furðuverur og skrímsli í Kleifarvatni.

January 18, 2021 22:28 - 46 minutes - 42.4 MB

Við skoðum Kleifarvatn bæði árin 1750, 1896 og 2021 og rekumst á furðuverur og skrímsli sem við þurfum að útskýra.

Selvogur.

January 12, 2021 18:18 - 1 hour - 71.9 MB

Við Bjarni skoðum Hlíðarvatn í Selvogi og nágrenni. Hittum höfuðskáld, útlagarollu og spjöllum við snjallann veiðimann um kuðunga, flugur, bellybáta ofl.

Undir jöklum.

January 05, 2021 17:05 - 45 minutes - 42.1 MB

Við ferðumst undir jöklum á svörtum söndum og skoðum allt sem við getum frá Skógá að Meðallandi. Hér er nóg af furðulegum hlutum. Þeir voru furðulegir 1896 og eru það enn í dag.

Jólaþáttur / Saga veiðimanns.

December 22, 2020 10:25 - 1 hour - 58.9 MB

Ég fer yfir ýmislegt hvað varðar mína veiðisögu. Fyrstu fiskarnir, allskonar svæði, syngjandi fisk á vændishùsi í Mannheim ofl.

Þjórsá 1896

December 15, 2020 17:36 - 47 minutes - 43.8 MB

Brúarsmiðurinn Mark veiðir fyrstur manna lax á stöng í Urriðafossi. 23 punda lax veiðist í Ytri Rangá og menn gapa yfir því að lax finnst þar. Þykkbæingar ráðast í mestu handavinnu íslandssögunnar. Stærsti laxastofn íslands verður til. Við skoðum Þjórsá og nágrenni með Bjarna Sæmundssyni 1896.

Varmá og nágrenni 1896

December 08, 2020 20:47 - 1 hour - 96.5 MB

Dagbók Urriða og Bjarni Sæmundsson skoða Varmá árið 1896. Einnig Hestvatn, Apavatn, Laugarvatn, nokkrar ár og leynivatn uppá fjalli. Sérstakur gestur í spjalli er Árni Kristinn Skúlasson.

Þingvellir 1896.

December 01, 2020 19:27 - 1 hour - 56.9 MB

Við ríðum með Bjarna Sæmundssyni til Þingvalla árið 1896 og skoðum fiskana, veiðimennina og dýralífið. Við stillum síðan tímavélahestinn okkar aftur til ársins 2020 og berum saman ólíka tíma og veiðisögur verða sagðar.